Vel heppnað málþing um stöðuna á vinnumarkaðiAlmennt - - Lestrar 252
Í vikunni var haldið málþing um stöðuna á vinnumarkaði hér á svæðinu í fundarsal stéttarfélaganna á Húsavík.
Á heimasíðu Framsýnar segir að tæplega 40 manns hafi sótt fundinn sem þótti heppnast mjög vel.
Nokkur erindi voru flutt á fundinum. Í framhaldi af þeim voru pallborðsumræður. Aðalsteinn Árni Baldursson setti fundinn. Flytjendur erinda voru Aðalsteinn J. Halldórsson frá stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslu, Einar Erlingsson frá Landsvirkjun, Unnsteinn Ingason frá Narfastöðum, Guðrún Tryggvadóttir frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga og Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings.
Í pallborði tóku þátt Aðalsteinn Á. Baldursson, Kristján Þór Magnússon, Guðrún Tryggvadóttir, Unnsteinn Ingason og Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdarstjóri ASÍ. Fundarstjóri var Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.