Veglegur styrkur til Styrktarfélags HSN í Þingeyjarsýslum

Nýverið barst Styrktarfélagi HSN í Þingeyjarsýslum veglegur styrkur frá fyrirtæki í Út-Kinn.

Daníel, Eiður og Guðrún við afhendingu styrksins.
Daníel, Eiður og Guðrún við afhendingu styrksins.

Nýverið barst Styrktarfélagi HSN í Þingeyjarsýslum veglegur styrkur frá fyrirtæki í Út-Kinn. 

Stjórn hlutafélagsins Raflækur ehf sem stofnað var árið 2004, um byggingu og rekstur virkjana í Nípá, ákvað að styrkja félagið um eina milljón króna.

Að sögn Eiðs Jónssonar, stjórnarformanns félagsins, hefur rekstur þess gengið vel og hafi því tök á að láta gott af sér leiða í nærsamfélaginu.  

Stjórn Styrktarfélagsins þakkar kærlega fyrir þennan frábæra stuðning við félagið.  Það er ljóst að þessir fjármunir munu koma sér vel við endurnýjun tækjabúnaðar á starfsstöðvum HSN í Þingeyjarsýslum.

Hluthafar í Raflækur ehf. eru fimm talsins, þ.e. ábúendur á Nípá, Ártúni, Árteigi I og II og Granastöðum. 

Tvær virkjanir eru nú í Nípá.  Fyrri virkjunin var gangsett árið 2006 og sú síðari, sem byggð var ofar í fjallinu, fór í gang árið 2009.  Þannig er vatnsafl árinnar tvívirkjað og fæst úr því 1183 kW afl og er ársframleiðslan um 9.500.000 kWh sem selt er inn á dreifikerfi Rarik. 

Félagið er með samning við OR í Reykjavík um kaup á orkunni.

Aðsend mynd

F.v. Daníel Borgþórsson, formaður styrktarfélagsins, Eiður Jónsson stjórnarformaður Raflæks ehf. og Guðrún Guðbjartsdóttir gjaldkeri styrktarfélagsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744