Uppsteypu lokið á Kárhóli – Stefnt á að starfsemi hefjist fyrir veturinn

Uppsteypu á Norðurljósarannsóknarhúsi Aurora Observatory á Kárhóli í Reykjadal lauk í síðustu viku og við tekur uppsetning á stálvirki efstu hæðar

Kárhóll. Ljósmynd 641.is
Kárhóll. Ljósmynd 641.is

Uppsteypu á Norðurljósarann-sóknarhúsi Aurora Observatory á Kárhóli í Reykjadal lauk í síðustu viku og við tekur uppsetning á stálvirki efstu hæðar hússins, auk frágangs drenlagna við húsið.

Fréttavefurinn 641.is greinir frá þessu en áætlað er að bygging efstu hæðar hússins hefjist fljótlega.

Húsið er um 760 m² að stærð og er staðsett skammt norðan og ofan við bæjarhúsin á Kárhóli. Byggingin er 3 hæðir, byggð úr steinsteypu og stáli. 

Að sögn Reinhards Reynissonar hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga er bygging hússins nokkuð á eftir áætlun en þrátt fyrir það er stefnt að því að koma fyrir einhverjum rannsóknartækjum um leið og kostur er svo að rannsóknarstarfsemi geti hafist í húsinu sem fyrst og það helst fyrir veturinn.

Á efstu hæð hússins verður öflugum myndavélum komið fyrir og þeim beint til himins til að fylgjast með norðurljósunum auk ýmiskonar rannsóknartækja. Á miðhæðinni verða ma. skrifstofur, rannsóknarstofur og fundarsalur og á jarðhæðinni verður sýningarsalur og fyrirlestrarsalur.

Um Aurora Observatory

Aurora Observatory (AO) er sjálfseignarstofnun með staðfestri skipulagsskrá lögum samkvæmt. Stofnaðilar eru þróunarfélögin tvö í landshlutanum; Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs. , Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. , sem er eignarhaldsfélag sveitarfélagsins, Kjarni ehf. , sem er eignarhaldsfélag í eigu Þingeyjarsveitar, Sparisjóðs Suður-Þingeyinga og nokkurra einstaklinga í héraði og Arctic Portal ehf., en fyrirtækið hefur virka aðkomu að margvíslegum rannsóknar- og upplýsingaverkefnum á sviði norðurslóðamála.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744