Ungir og efnilegir leikmenn undirrita samning við Völsung

Völsungur hefur að undanförnu undirritað samninga við nokkra unga og efnilega knattspyrnumenn félagsins.

Haukur Eiðsson ásamt ungum og efnilegum Völsungum.
Haukur Eiðsson ásamt ungum og efnilegum Völsungum.

Völsungur hefur að undanförnu undirritað samninga við nokkra unga og efnilega knattspyrnu-menn félagsins.

Í þeim hópi eru Arnar Pálmi Kristjánsson (f. 2002), Elmar Örn Guðmundsson  (f. 2001), Kristján Leó Arnbjörnsson (f. 2001), Páll Vilberg Róbertsson (f. 2001), Rafnar Máni Gunnarsson (f. 2002), Sigurður Már Vilhjálmsson (f. 2000), Stefán Óli Hallgrímsson (f. 2002) og Steinarr Bergsson (f. 2001).

Á heimasíðu félagsins segir að þessir ungu og efnilegu leikmenn bætist nú við stóran hóp efnilegra leikmanna sem samningsbundnir eru félaginu og leggja hart að sé við æfingar og keppni á vegum Völsungs.

IFV

IFV


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744