Um sveitina flæðir úrvalsmjólk

Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjólk alla mánuði ársins 2023.

Um sveitina flæðir úrvalsmjólk
Almennt - - Lestrar 151

Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjólk alla mánuði ársins 2023.

Þau eru Karl Björnsson á Veisu, Vogabú ehf, Hildigunnur Jónsdóttir á Lyngbrekku, Dagný og Þórir á Öxará, Lækjamót 641 ehf., Flosi Gunnarsson á Hrafnsstöðum og Félagsbúið Hraunkoti.

Frá þessu segir á heimasíðu Þingeyjarsveitar en Alls náðu 35 mjólkurframleiðendur á starfssvæði Auðhumlu svf. þessum árangri. Þetta er svipaður fjöldi og verið undanfarin ár. Árið 2022 voru 36 mjólkurframleiðendur sem náðu þessum árangri, að stórum hluta þeir sömu og náðu honum aftur á liðnu ári.

Á komandi deildarfundum Auðhumlu svf. munu þessir mjólkurframleiðendur fá afhentar viðurkenningar fyrir árangurinn. 

Hér má sjá nánari upplýsingar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744