12. feb
Tónkvíslin 2017 - Fimm flytjendur úr BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 382
Nú er ljóst hvað flytjendur taka þátt í Tónkvísl 2018, söngvakeppni Framhaldsskólans á Laugum, en halda þurfti sérstaka undankeppni í fyrsta skipti, vegna mikils áhuga.
Í Tónkvíslinni í ár verða 20 söngatriði. Tólf flytjendur koma úr Framhaldsskólanum á Laugum, fimm frá Borgarhólsskóla á Húsavík og einn frá Stórutjarnaskóla, Öxarfjarðarskóla og Þingeyjarskóla.
Upphaflega voru skráðir 31 flytjandi til keppni í Tónkvíslinni, en nú er sérstök dómnefnd búin að velja 20 bestu söngatriðin sem keppa í aðalkeppninni 17. mars nk. en undankeppnin fór fram um sl. helgi. Stúlkur eru í miklum meirihluta flytjenda í ár, en af 20 flytjendum eru 16 stúlkur.
Lesa nánar hér