Þingeyjarsveit fær afhentar fjórar nýjar íbúðir

Nýverið fengu Þingeyjarsveit og Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar afhentar fjórar nýjar íbúðir, tvær í Reykjahlíð og tvær á Laugum.

Nýverið fengu Þingeyjarsveit og Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar afhentar fjórar nýjar íbúðir, tvær í Reykjahlíð og tvær á Laugum.

Í Reykjahlíð fékk sveitarfélagið afhentar tvær fjögurra herbergja raðhúsaíbúðir í Klapparhrauni, 116,9 m2 að flatarmáli hvor, byggðar af BH bygg ehf.

Íbúðirnar við Lautarveg á Laugum eru í eigu Leiguíbúða Þingeyjarsveitar og eru þær tveggja herbergja 66,7m2 byggðar af J. Jónssyni ehf.

Fram kemur á heimasíðu Þingeyjarsveitar að mikil fjölgun íbúa hefur verið í sveitarfélaginu síðastliðið ár og allt sem bendir til að svo verði áfram, því kemur það sér vel á fá fleiri íbúðir inn á húsnæðismarkaðinn.  

Til að koma á móts við þá fjölgun sem er í sveitarfélaginu þarf að halda áfram uppbyggingu íbúða og ætlar sveitarstjórn skoða skoða fýsileika þess að fara í  samstarf við Leigufélagið Bríet um áframahaldandi uppbyggingu og rekstur íbúða í sveitarfélaginu og strax á næsta ári munu tvær íbúðir í eigu Bríetar við Lautarveg á Laugum fara í útleigu. 

Einnig hyggst sveitarstjórn í samstarfi við stjórn Leiguíbúða Þingeyjarsveitar skoða fýsileika þess að sameina Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. við húsnæðissamvinnufélagið Brák hses. og halda áfram uppbyggingu íbúða í almenna leigukerfinu.

Íbúðirnar í Klappahrauni og Lautavegi verða auglýstar til leigu á næstu dögum.  

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744