Þingeyjarsveit - Anna Bragadóttir leysir skipulagsfulltrúa af í fæðingarorlofi

Anna Bragadóttir hefur tekið tímabundið við starfi skipulagsfulltrúa Þingeyjarsveitar á meðan á fæðingarorlofi Atla Sveinbjörnssonar stendur eða til maí

Anna Bragadóttir.
Anna Bragadóttir.

Anna Bragadóttir hefur tekið tímabundið við starfi skipulagsfulltrúa Þingeyjarsveitar á meðan á fæðingarorlofi Atla Sveinbjörnssonar stendur eða til maí loka.

Fram kemur á heimasíðu Þingeyjarsveitar að Anna er með BSc gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands og starfar á sviði þéttbýlistækni við skipulagsgerð, stefnumótun, ráðgjafar, greiningar og verkefnastjórnunar hjá Eflu hf.

Áður en hún réðst til starfa hjá Eflu, starfaði hún sem verkefnastjóri skipulagsmála á Akureyri á árunum 2006-2018. Anna hefur mikla þekkingu á stjórnsýslu sveitarfélaga, undirbúningi, ferli og gildistöku skipulagsáætlana.

Anna er staðsett á Hlíðavegi 6 í Reykjahlíð og netfang hennar er skipulag@thingeyjarsveit.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744