Þakkir frá nemendum Borgarhólsskóla

Nemendur í sjötta bekk Borgarhólsskóla útbjuggu þakkaspjöld til að dreifa í samfélaginu.

Þakkir frá nemendum Borgarhólsskóla
Almennt - - Lestrar 209

Starfsfólk Nettó fékk þakkarspjald.
Starfsfólk Nettó fékk þakkarspjald.

Nemendur í sjötta bekk Borgar-hólsskóla útbjuggu þakkaspjöld til að dreifa í samfélaginu.

Starfsfólk Nettó, heilsugæslunnar, Hvamms, Grænuvalla, Borgarhóls-skóla og á fleiri stöðum fékk hlýjar kveðjur og hvatningarorð á tímum Covid-19 sem hefur sannarlega sett svip sinn á allt samfélagið.

Nemendur afhentu spjöldin úti í samfélaginu sem vakti ánægju og hjartnæma gleði. "Það er mikilvægt að draga fram kærleika og bros og virkja það jákvæða sem veiran virðist draga fram" segir á heimasíðu Borgarhólsskóla.

Aðsend

Hér má sjá þakkir sem starfsfólk Hvamms voru afhentar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744