24. maí
Þá og nú, málverkasýning Guðbjargar RingstedAlmennt - - Lestrar 290
Þá og nú er yfirskrift málverka-sýningar sem Guðbjörg Ringsted opnar þann 27.maí kl.14 í Safnahúsinu á Húsavík.
Sú yfirskrift er bæði vísun í gamla og nýja tíma sem og að á sýningunni verða verk frá árinu 2012 fram til dagsins í dag sem sýna þá þróun sem verið hefur á málverkum Guðbjargar þennan tíma.
Sem fyrr leitar Guðbjörg í smiðju gamalla blómamynstra frá íslenska kvenþjóðbúningnum, en hún finnur þeim nýstárlegan farveg í málverkum sínum.
Þetta er 32. einkasýning Guðbjargar en hún útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982.
Guðbjörg var bæjarlistamaður Akureyrar 2012-2013.
Sýningin er opin á opnunartíma safnsins frá 27. maí til 31. júlí 2017.