Sviðalappir eru herramannsmaturAlmennt - - Lestrar 812
“Sviðalappir eru herramannsmatur, bæði súrar og nýjar. Nýjar borða ég þær með rófustöppu ásamt flatbrauði með sméri og skola niður með ískaldri mjólk”.
Sagði Jónas Sævarsson við tíðindamann 640.is sl. sunnudag þar sem hann var að svíða kindalappir ásamt Ólafi Frey syni sínum.
"Annars dundum við feðgar aðallega við þetta okkur til gamans. Það er skemmtilegt að halda í hefðirnar en við svíðum oftast um 200 lappir.
Þær gefum við síðan að mestu ættingjum og vinum, mömmu finnst þær td. góðar og Kidda systir er alveg brjáluð í þær". Sagði Jónas og hló um leið og hann dró upp neftóbaksdósina og bauð í nefið.
Síðan héldu þeir feðgar áfram við að svíða.
Feðgar að svíða lappir.
Með því að smella á myndirnar má skoða þá feðga í stærri upplausn.