Sundlaugin í Lundi verður opin í sumar

Rekstraraðilar eru komnir að sundlauginni í Lundi í Öxarfirði og stefnt var að opnun í gær.

Sundlaugin í Lundi verður opin í sumar
Almennt - - Lestrar 321

Cordella og Neil.
Cordella og Neil.

Rekstraraðilar eru komnir að sundlauginni í Lundi í Öxarfirði og stefnt var að opnun í gær.

Norðurþing hafði um tíma auglýst eftir starfsfólki án árangur og því var ákveðið að auglýsa eftir rekstraraðilum.

Það eru þau Neil og Cordelia sem munu standa vaktina í sumar en þau eru með víðtæka reynslu og hafa meðal annars unnið við leiðsögn við köfun á Íslandi síðastliðin tvö ár. 

„Það er mikið ánægjuefni að sundlaugin í Lundi sé opin og í ár og bjóðum við þau velkomin á staðinn,“ segir í fréttatilkynningu en undanfarna daga hefur verið unnið hörðum höndum að undirbúningi opnunarinnar.  


Frekari upplýsingar verður að finna á facebook síðu sundlaugarinnar. https://www.facebook.com/sundlauginilundi/?fref=ts

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744