Stjórnendur ráđnir til PCC BakkiSilicon

Hafsteinn Viktorsson og Jökull Gunnarsson hafa veriđ ráđnir til PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík.

Stjórnendur ráđnir til PCC BakkiSilicon
Fréttatilkynning - - Lestrar 685

Hafsteinn Viktorsson - Jökull Gunnarsson.
Hafsteinn Viktorsson - Jökull Gunnarsson.

Hafsteinn Viktorsson og Jökull Gunnarsson hafa veriđ ráđnir til PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík.

Hafsteinn Viktorsson

Hafsteinn Viktorsson.

Hafsteinn Viktorsson hefur veriđ ráđinn sem forstjóri PCC BakkiSilicon frá og međ mars 2017. Hafsteinn mun ţó koma til starfa fyrr og starfa sem framkvćmdastjóri tćknisviđs frá júní 2016. Hafsteinn er viđhaldsfrćđingur frá St. Louis University ađ mennt og á árunum 2005-2010 starfađi hann hjá Alcoa Fjarđaráli. Fyrst sem framkvćmdastjóri áreiđanleika- og raforkuteymis 2005-2008, árin 2008-2009 starfađi hann sem framkvćmdastjóri heilsu- og öryggisteymis og á árunum 2008-2010 sem framkvćmdastjóri framleiđslu ásamt ţví ađ vera stađgengill forstjóra. Síđustu ár hefur Hafsteinn starfađ ađ fjárfestingaverkefnum fyrir móđurfélag Alcoa Fjarđaráls. Áđur starfađi Hafsteinn hjá Icelandair. Hafsteinn er kvćntur Borghildi Ísfeld Magnúsdóttur og eiga ţau 2 börn.

Jökull Gunnarsson

Jökull Gunnarsson.

Jökull Gunnarsson hefur veriđ ráđinn framkvćmdastjóri framleiđslu hjá PCC BakkiSilicon og mun hann hefja störf í mars 2016. Jökull er verkfrćđingur ađ mennt og hefur hann undanfarin ár starfađ sem framkvćmdastjóri hjá Rio Tinto Alcan. Fyrst sem leiđtogi kerreksturs árin 2004-2007 og síđan sem framkvćmdastjóri kerskála árin 2007-2012 og frá árinu 2012 sem framkvćmdastjóri Steypuskál.  Áđur starfađi Jökull fyrir Marel á Íslandi. Jökull er kvćntur Ástu Sigfúsdóttur og eiga ţau 4 börn.

Talent ráđningar&ráđgjöf veitti ráđgjöf viđ ráđningarnar.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744