12. júl
Steytti á skeri við KaldbaksnefAlmennt - - Lestrar 529
Smábátur strandaði við Kaldbaksnef sunnan Húsavíkur á fimmta tímanum í dag.
Björgunarsveitin Garðar á Húsavík var kölluð út vegna strandsins og fór þegar af stað á björgunarbátnum Jóni Kjartanssyni.
Þá bað Landhelgisgæslan nærstadda báta um að fara á staðinn.
Einn maður var um borð í smábátnum, en lítil hætta var talin á ferð, enda blíðuveður þegar þetta gerðist og spegilsléttur sjór. Talið er að bátinn hafi rekið upp á skerið.
Björgunarsveitarmenn drógu bátinn á flot og er hann óskemmdur að sögn félaga í Björgunarsveitinni Garðari. (ruv.is)
Ljósmyndir: Sædís Rán Ægisdóttir.