Starfsmannafélag FH lét gott af sér leiða

Starfsmannafélag Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. lét gott af sér leiða á dögunum þegar það styrkti góð málefni hér í bæ.

Starfsmannafélag FH lét gott af sér leiða
Almennt - - Lestrar 468

Starfsmannafélag Fiskiðjusam-lags Húsavíkur hf. lét gott af sér leiða á dögunum þegar það styrkti góð málefni hér í bæ.

Í félaginu voru starfsmenn Vísis á Húsavík og þar sem hluti þeirra flutti til Grindavíkur, en aðrir ekki, var ákveðið á aðalfundi félagsins í vor að peningur sá sem til var í sjóði skyldi renna til samfélagsverkefna hér á Húsavík.

Ákveðið var að styrkja Leikskólann Grænuvellir, Björgunarsveitina Garðar og Styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og komu 322.004 kr. í hlut hvers aðila fyrir sig.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744