Staðan mjög góð hjá iðnaðarmönnum

Almennt séð er staðan mjög góð um þesar mundir hjá iðnaðarmönnum á félagssvæði Þingiðnar, sérstaklega þó hjá trésmiðum.

Staðan mjög góð hjá iðnaðarmönnum
Almennt - - Lestrar 238

Ljósmynd framsyn.is
Ljósmynd framsyn.is

Almennt séð er staðan mjög góð um þessar mundir hjá iðnaðarmönnum á félagssvæði Þingiðnar, sérstaklega þó hjá trésmiðum.

Þetta kom m.a fram í gær en þá funduðu formaður Þingiðnar, Jónas Kristjánsson, og fram-kvæmdastjóri félagsins með Byggðaráð Norðurþings.

Umræðuefnið var staðan í atvinnumálum hjá iðnaðarmönnum. Í máli Jónasar kom fram eins og áður segir að almennt er staðan mjög góð hjá iðnaðarmönnum sérstaklega þó hjá trésmiðum innan félagsins.

Töluvert hefur verið um nýbyggingar og viðhaldsverkefni á svæðinu. Að sjálfsögðu munaði um stórar framkvæmdir á okkar mælikvarða eins og framkvæmdir Búfesti á Húsavík, nýja fjölbýlishúsið við Útgarð og framkvæmdir fiskeldisfyrirtækja í Kelduhverfi og Öxarfriði.

Allt væru þetta mannfrek verkefni. Frekari verkefni væru í farvatninu sem kæmu til með að skipta verulega miklu máli á næstu árum hvað byggingariðnaðinn varðaði s.s. bygging á nýju hjúkrunarheimili á Húsavík.

Jafnframt væri til skoðunar að reisa húsnæði undir þaraverksmiðju, vonandi næði sú hugmynd fram að ganga.

Þá kæmi til með að lifna yfir öðrum iðnaði þegar starfsemi PCC á Bakka færi aftur á stað í vor. Jónas sagði bjart yfir iðnaðarmönnum um þessar mundir enda mikið að gera og lítið sem ekkert atvinnuleysi meðal þeirra ólíkt öðrum atvinnugreinum. (framsyn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744