Söfnuðu áheitum fyrir fimleikaferð til Danmerkur

Fimleikaiðkendur á aldrinum 11-16 ára eru að fara í æfingabúðir til Ollerup í Danmörku næsta sumar.

Söfnuðu áheitum fyrir fimleikaferð til Danmerkur
Íþróttir - - Lestrar 371

Á handahlaupum á gervigrasinu.
Á handahlaupum á gervigrasinu.

Fimleikaiðkendur á aldrinum 11-16 ára eru að fara í æfingabúðir til Ollerup í Danmörku næsta sumar. 

Á heimasíðu Völsungs segir að ferð sem þessi sé orðin fastur liður í starfi fimleikadeildar og er mikil lyftistöng fyrir þá sem í hana fara.

 

Fimleikakrakkar í Völsungi

Hluti fimleikakrakkanna að loknu handahlaupinu.

Í Ollerup eru allar aðstæður og þjálfun til fyrirmyndar og hafa krakkarnir alltaf lært mikið. Þau hafa verið dugleg að safna fyrir ferðinni og er einn liður í þeirri söfnun að safna áheitum í bænum en það gerðu þau í síðustu viku. Einnig  söfnuðu iðkendur úr Mývatnssveit áheitum í fyrirtækjum þar.

Á laugardaginn síðasta stóðu þau svo við sinn hlut og fóru á handahlaupum í kring um gervigrasvöllinn vegalengdina sem nemur einum Botnsvatnshring, eða 5 km. Allt gekk vel og samkvæmt áætlun. Krakkarnir og foreldrar þeirra vilja þakka öllum þeim sem studdu þau kærlega fyrir. (volsungur.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744