Slökkt á götuljósum á Húsavík í kvöld vegna norðurljósa

Ákveðið hefur verið að fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.00.

Norðurljósin dönsuðu við Saltvík í gærkveldi.
Norðurljósin dönsuðu við Saltvík í gærkveldi.

Ákveðið hefur verið að fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.00.

Í tilkynningu á heimasíðu Norðurþings segir að ástæðan sé sú að spáð er glæsilegri norðurljósasýningu í kvöld. 

Vonir standa til að það verði heiðskýrt þannig að sýning náttúrunnar skili sér sem allra best.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni á meðan götuljósin eru slökkt.

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari 640.is í gærkveldi og með því að smella á þær er hægt að skoða þær í stærri upplausn.

Norðurljós

Norðurljós


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744