Skrifað undir verndar- og stjórnunaráætlun Dimmuborga

Skrifað hefur verið undir verndar- og stjórnunaráætlun náttúruvættisins Dimmuborga í Mývatnssveit.

Daði Lange Friðriksson og Davíð Örvar Hansson.
Daði Lange Friðriksson og Davíð Örvar Hansson.

Skrifað hefur verið undir verndar- og stjórnunaráætlun náttúruvættisins Dimmuborga í Mývatnssveit.

 
Það voru Daði Lange Friðriksson sem staðfesti áætlunina fyrir hönd Landgræðslu Ríkisins og Kristín Linda Árnadóttir og Davíð Örvar Hansson fyrir hönd Umhverfisstofnunar. 
 
 

Með gildistöku áætlunarinnar er tekin í gagnið skýr starfsáætlun um hvernig verndargildi Dimmuborga verði viðhaldið. Liður í því er m.a. talning ferðamanna sem sækja svæðið heim en 

Landgræðslan, Umhverfisstofnunog Háskóli Íslands vinna nú að talningu ferðamanna sem mun gefa skýra mynd af fjölda ferðamanna á svæðinu. 

Með aukinni þekkingu á fjölda ferðamanna og dreifingu á gestakomum eykst yfirsýn sem gerir uppbyggingu á svæðinu markvissari.

Undirritunin er táknrænn endir vinnuferlis sem hófst í desember og lauk á gróskumiklum rigningardegi í Dimmuborgum. 

Áhugasamir geta kynnt sér efni áætlunarinnar á heimasvæði Dimmuborga á www.umhverfisstofnun.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744