Skíðað í Skálamelnum í dag - MyndasyrpaAlmennt - - Lestrar 582
Það má segja með sanni að það hafi verið gleðidagur á Húsavík í dag þegar skíðabrekkan í Skálamel var opin í fyrsta skipti í vetur.
Unnið var hörðum höndum í síðustu viku og í gær við að keyra snjó í þau svæði sem voru snjólítil og að troða brekkurnar.
Oft hefur sést meiri snjór í melnum og er eitthvað af berum svæðum sem þurfa sérstaka meðhöndlum segir á heimasíðu Norðurþings.
“Að hafa skíðabrekku í túnfætinum eru forréttindi og þar sem þetta var fyrsti dagurinn í vetur sem Skálamelurinn er opinn fengu nemendur leyfi frá hádegi til að komast á skíði. Nú eða bretti enda viðraði vel, sólin skein skært og bjart yfir að líta” sagði Hjálmar Bogi Hafliðason deildarstjóri 6- 10 bekkjar Borgarhólsskóla en skíðasvæðið verður opið næstu daga frá kl. 14-19.
Aðgangur er ókeypis. Gönguspor verður á FSH túninu á meðan að Skálamelur er opinn.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.