Sigur og tap hjá stelpunum um helgina

Meistaraflokkur kvenna hjá Völsungi hóf leik í Íslandsmótinu um helgina þegar liðið fór suður og keppti tvo leiki en liðið leikur í ár í 2. deild ásamt

Sigur og tap hjá stelpunum um helgina
Íþróttir - - Lestrar 474

Áslaug Munda kom Völsungi á bragðið á Álftanesi.
Áslaug Munda kom Völsungi á bragðið á Álftanesi.

Meistaraflokkur kvenna hjá Völsungi hóf leik í Íslandsmótinu um helgina þegar liðið fór suður og keppti tvo leiki en liðið leikur í ár í 2. deild  ásamt átta öðrum liðum.

Á laugardeginum var leikið gegn Álftanesi á gervigrasinu á Bessastaðavelli og þann leik unnu stelpurnar 3-0.

Mörkin skoruðu Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Harpa Ásgeirsdóttr og Kayla June Grimsley.

Á sunnudaginn lék liðið gegn Aftureldingu/Fram á gervigrasinu á Varmá og þar höfðu heimastúlkur betur 3-1.

Mark Völsungs skoraði Krista Eik Harðardóttir.

Þrír leikmenn gengu frá samningum við meistaraflokk Völsungs í síðustu viku:

Harpa Ásgeirsdóttir skrifaði undir eins ár samning í vikunni og tekur slaginn með liðinu í sumar. Mikil gleðitíðindi en Harpa er reynslumesti leikmaður liðsins. Harpa hefur leikið 116 leiki fyrir Völsung í deild og bikar og skorað í þeim 40 mörk.

Elfa Mjöll Jónsdóttir skrifaði undir tveggja ára samning við Völsung. Hún er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur verið viðloðin landsliðsverkefni. Hún er uppalinn Völsungur og er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki í sumar.

Allison Cochran ritaði undir eins árs samning við félagið og mun því leika með liðinu í sumar. Allison kemur frá Bandaríkjunum þar sem hún hefur leikið í háskólaboltanum við góðan orðstír.

Fyrsti heimaleikur liðsins verður föstudaginn 19. maí þegar Einherji kemur í heimsókn. (volsungur.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744