Sá guli kominn í gagnið á RaufarhöfnAlmennt - - Lestrar 279
Á dögunum var nýr löndunar-krani tekinn í notkun við höfnina á Raufarhöfn.
Eins og kom fram á 640.is í nóvember á síðasta ári ákvað Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings að flytja löndunarkrana sem staðsettur hafði verið til nokkurra ára við Húsavíkurhöfn til Raufarhafnar.
Það voru þeir Björn Þór og Rögnvaldur á Birni Hólmsteinssyni ÞH 164 sem voru fyrstir til að landa með krananum en þeir eru á ýsunetum þessa dagana.
"Það er mikil ánægja hérna með kranann félagi og kunnum við vinum okkar úr vesturbæ Norðurþings miklar þakkir fyrir" sagði Gunnar Páll Baldursson hafnarvörður á Raufarhöfn í spjalli við 640.is en hann tók meðfylgjandi myndir.
Kraninn er viðbót við annan eldri og styttir löndunarbið hjá bátunum þegar vertíðar eru í gangi.
Félagarnir að landa í dag með báðum krönununum.
Ljósmyndir Gunnar Páll.