24. nóv
Rekstur Tjaldsvæða Norðurþings 2024 verður boðinn útAlmennt - - Lestrar 133
Á fundi Skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings í vikunni var m.a fjallað rekstur tjaldstæðisins á Húsavík
Fyrir fundinum lágu gögn um rekstur tjaldsvæðisins fyrir árið 2023.
Samningur við Völsung um rekstur tjaldsvæðisins hefur runnið sitt skeið.
Fyrir Skipulags- og framkvæmdaráði lá að taka þarf ákvörðun um rekstrarform tjaldsvæðisins fyrir árið 2024.
Fyrir ráðinu lágu einnig tillögur um endurnýjun þjónustuhúss á Tjaldsvæði Húsavíkur.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að bjóða reksturinn á tjaldsvæðum sveitarfélagsins út og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá því.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir einnig að fjarlægja núverandi byggingar að undanskyldu geymsluhúsnæði og að byggt verði nýtt aðstöðuhús. Verkinu skal lokið í maí 2024.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir einnig að fjarlægja núverandi byggingar að undanskyldu geymsluhúsnæði og að byggt verði nýtt aðstöðuhús. Verkinu skal lokið í maí 2024.