Páll Vilberg dúx Framhaldsskólans á Húsavík

Aðstæður voru um margt óvenjulegar þegar 18 nemendur voru útskrifaðir frá Framhaldsskólanum á Húsavík 23. maí síðastliðinn.

Páll Vilberg dúx Framhaldsskólans á Húsavík
Almennt - - Lestrar 474

Páll Vilberg Róbertsson.
Páll Vilberg Róbertsson.

Aðstæður voru um margt óvenju-legar þegar 18 nemendur voru útskrifaðir frá Framhaldsskólanum á Húsavík 23. maí síðastliðinn.

Fjöldatakmarkanir gerðu það að verkum að einungis útskriftar-nemar og nánasta fjölskylda gat verið viðstödd ásamt skóla-meistara og aðstoðarskóla-meistara.

Hátíðarræður fluttu Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari, Halldór Jón Gíslason aðstoðar-skólameistari og Steinarr Bergsson nýstúdent.

Athöfninni var streymt á facebook síðu skólans og fylgdist fjöldi manns með athöfninni í gegnum vefinn.

Fjöldi fyrirtækja og samtaka komu að því að veita nemendum gjafir fyrir góðan námsárangur og félagsstörf. Páll Vilberg Róbertsson útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi að þessu sinni. 

Fyrir það hlaut hann bókagjöf frá Framhaldsskólanum á Húsavík og gjafabréf frá Þekkingarneti Þingeyinga.

Ljósmynd 640.is

Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari flutti hátíðarræðu.

Ljósmynd 640.is

Guðrún María Guðnadóttir söng tvö lög við athöfnina við undirleik föður síns Guðna Bragasonar.

Ljósmynd 640.is

Húfurnar settar upp.

Ljósmynd 640.is

Steinarr Bergsson flutti ræður fyrir hönd útskriftarnema.

Ljósmynd 640.is

Páll Vilberg Róbertsson útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi að þessu sinni. 

Ljósmynd 640.is

Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744