Nýársmótið í blaki

Dagana 9. – 10. janúar sl. fór Nýársmót Völsungs í blaki fram í 20. skipti.

Nýársmótið í blaki
Íþróttir - - Lestrar 549

Brosmildir Völsungar á Nýársmóti. Lj. EKS
Brosmildir Völsungar á Nýársmóti. Lj. EKS

Dagana 9. – 10. janúar sl. fór Nýársmót Völsungs í blaki fram í 20. skipti. 

Iðkendum um allt land í flokki fullorðinna í blaki, hefur fjölgað jafnt og þétt hin síðustu ár og þátttaka liða aukist ár frá ári. Að þessu sinni voru 36 lið skráð til leiks á Nýársmótinu okkar, ríflega 250 manns, frá 17 félögum og komu þau allt frá Siglufirði austur á Reyðarfjörð.

Kvenfólkið er áberandi í blakíþróttinni en fjöldi þátttökuliða skiptist í 28 kvennalið og 8 karlalið. Keppt var í fjórum deildum kvenna og einni deild karla.


Spilaðir voru 96 leikir og hófst mótið á föstudagskvöldi í Íþróttahöllinni á Húsavík. Á laugardeginum voru einnig spilaðir nokkrir leikir í Ýdölum en alls var spilað blak í 15 klukkustundir á þremur  til  fjórum völlum í senn.

Ekki er hægt að segja annað en gleðin hafi verið við völd, bæði utan vallar sem innan. Leikmenn buðu áhorfendum upp á gott og skemmtilegt blak, drengilega keppni og oft á tíðum mikil tilþrif. Bæjarbúar voru duglegir að koma við í Íþróttahöllinni og fylgjast með leikjum.

Fyrstu áhorfendur inn í hús á föstudagskvöldinu voru heiðurshjónin Védís og Vilhjálmur en það er ánægjulegt að sjá hvað þau eru dugleg að styðja við blakfólkið okkar.

Lesa meira á heimasíðu Völsungs um öll úrslit ofl.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744