11. maí
Ný heimasíða Langanesbyggðar er komin í loftiðAlmennt - - Lestrar 219
Ný heimasíða Langanesbyggðar er komin í loftið. Með henni fylgja ýmsir nýir og auknir möguleikar, auk þess sem öryggi er mun betra en áður.
Á heimasíðunni eru notendur hennar og aðrir áhugasamir hvattir til að skoða síðuna og kynna sér. Þó hún sé búin að vera nokkurn tíma í undirbúningi, er ljóst að hana má bæta í framtíðinni. Því vill Langanesbyggð óska eftir ábendingum bæði um efni sem má koma inn og annað sem betur má fara.