Nemendur og starfsfólk Borgarhólsskóla láta gott af sér leiða

Undanfarin ár hafa nemendur og starfsfólk Borgarhólsskóla látið gott af okkur leiða og látið fé rakna til góðgerðarmála.

Þórgunnur skólastjóri og Sr. Sólveig Halla.
Þórgunnur skólastjóri og Sr. Sólveig Halla.

Undanfarin ár hafa nemendur og starfsfólk Borgarhólsskóla látið gott af okkur leiða og látið fé rakna til góðgerðarmála.

Í stað þess að nemendur og starfsfólk skiptist á gjöfum á Litlu jólum fær hver nemandi afhent umslag til að fara með heim og setja í það pening.

Frá þessu segir á heimasíðu skólans en það er hverjum og einum frjálst hversu há upphæð fer í umslagið kjósi viðkomandi að styrkja málefnið. Stjórnendur skólans völdu að framlag skólans renni í Velferðarsjóð Þingeyinga, bæði nemenda og starfsfólks.

Skólinn afhendir Velferðarsjóðnum nú 179.599 kr. frá nemendum og starfsfólki sem nýtist vonandi vel yfir hátíðirnar.

Munum að margt smátt gerir eitt stórt.

Í desember 2008 var Velferðarsjóðurinn stofnaður til að styðja fjárhagslega við bakið á fjölskyldum og einstaklingum, sem eiga um sárt að binda á starfsvæði Félagsþjónustu Norðurþings.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744