Myndasyrpa frá KiwanismótinuÍþróttir - - Lestrar 977
Kiwanismótið í knattspyrnu fór fram sl. laugardag en þar öttu kappi yngstu knattspyrnu-kapparnir
Um 500 krakkar úr 6-8 flokki komu til keppni frá níu liðum af Norðaustur- og Austurhelmingi landsins auk Völsungs
Að sögn Bergs Jónmundssonar staðgengils framkvæmdarstjóra Völsungs tókst mótið tókst afar vel til enda blíðskaparveður á víkinni.
"Við viljum nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu fram sína vinnu til þess að mótið gæti farið fram. Dómarar og foreldrar barna hjá Völsungi fá sérstakar þakkir fyrir sína vinnu". Segir Bergur en hér að neðan er myndasyrpa frá mótinu.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.