Mynd dagsins - Katlavöllur í haustblíðunni

Mynd dagsins var tekin yfir Katlavöll í haustblíðunni en hann var upphaflega tekinn í notkun árið 1971.

Mynd dagsins - Katlavöllur í haustblíðunni
Mynd dagsins - - Lestrar 224

Katlavöllur í haustblíðu dagsins.
Katlavöllur í haustblíðu dagsins.

Mynd dagsins var tekin yfir Katlavöll í haustblíðunni en hann var upphaflega tekinn í notkun árið 1971. Þá níu holu völlur.

Að sögn Hjálmars Boga Hafliða-sonar formanns Golfklúbbs Húsavíkur fór golfsumarið seint af stað en reis hátt enda sóttu Íslendingar í einn fallegasta golfvöll á Íslandi. 

Flatir hafa ekki komið jafn illa undan vetri síðan Hjálmar hóf að spila golf en snjór fór af golfvallarsvæðinu þann 1. júlí sem er óvenju seint. 

"Það sannaði sig í sumar að Katlavöllur er mikill segull á ferðamenn enda hefur hann mikið aðdráttarafl. Fólk kom hinsvegar ekki til að lækka sína forgjöf. Sjálfur lækkaði ég forgjöfina eftir áralanga baráttu við völlinn í ein átta ár. Nokkur ungmenni dvelja lengi á vellinum enda hin besta barnapía og afþreying. 

Þá er ég virkilega ánægður með starfsmenn vallarins og Sigga Hreins, vallarstjórann okkar sérstaklega sem sinnir vellinum af mikilli natni og ástríðu. Það er ljóst að það eru mikið sóknartækifæri fyrir klúbbinn, sveitarfélagið og svæðið allt” sagði formaðurinn í stuttu spjalli við 640.is.

Ljósmynd 640.is

Eins og sjá má á myndinni er enn verið að spila golf enda veður gott. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744