21. okt
Mikið brim í morgunAlmennt - - Lestrar 383
Nokkuð hvasst var í norðvestan-áttinni í morgun og mikið brim við Skjálfanda.
Lægja tók þegar líða fór á daginn.
Þá var sjávarstaða mjög há í höfninni þegar ljósmyndari 640.is var þar á ferðinni upp úr kl. 10 og tók meðfylgjandi myndir.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Mikill ágangur brimsins við bakkana sunnan Þorvaldsstaðarár.
Það mæddi mikið á Bökugarðinum í dag enda kraftur úthafsöldunnar mikill.
Tvær næstu myndir voru teknar upp úr hádeginu.