Mannvit styrkir knattspyrnudeild Völsungs

Mannvit og Völsungur hafa gert með sér samstarfs- og styrktarsamning sem felst í því að fyrirtækið mun styðja fjárhagslega við bakið á

Mannvit styrkir knattspyrnudeild Völsungs
Almennt - - Lestrar 318

Mannvit og Völsungur hafa gert með sér samstarfs- og styrktar-samning sem felst í því að fyrir-tækið mun styðja fjárhagslega við bakið á knattspyrnudeildinni næstu 3 árin.

 

Á heimasíðu Völsungs segir að mikil ánægja sé innan raða beggja aðila með samninginn og samstarfið næstu árin en þetta er stærsti einstaki samstarfs- og styrktarsamningur sem Mannvit hefur gert til þessa. 

Jónas Halldór Friðriksson, fyrir hönd Völsungs, og Böðvar Bjarnason, fyrir hönd Mannvits, handsöluðu samninginn síðastliðinn fimmtudag í blíðskapar veðri út á fótboltavelli eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744