Máli Landverndar vegna Kröflulínu 4 vísað frá

Héraðsdómur Norðurlands eystra vísaði í gær frá dómsmáli Landverndar um ógildingu framkvæmdaleyfis í Skútustaðahreppi vegna Kröflulínu 4.

Máli Landverndar vegna Kröflulínu 4 vísað frá
Almennt - - Lestrar 182

Kröfluína 4, mastur tilbúið til reisingar.
Kröfluína 4, mastur tilbúið til reisingar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra vísaði í gær frá dómsmáli Landverndar um ógildingu framkvæmdaleyfis í Skútustaðahreppi vegna Kröflulínu 4.

Niðurstaða héraðsdóms byggir á því að Landvernd hafi ekki lögvarða hagsmuni af því að  krefjast ógildingar framkvæmdaleyfis.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í apríl síðastliðnum kröfu Landverndar um ógildingu ákvörðunar sveitarstjórnar Skútustaðahrepps um útgáfu framkvæmdaleyfisins.

Á heimasíðu Landsnets segir að vinna við Kröflulínu 4 sé í fullum gangi og ganga framkvæmdir vel. Áætlað er að línan verið tilbúin i rekstur i byrjun september. (landsnet.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744