Landvernd ítrekar kröfu um nýtt umhverfismat Bakkalínu

Land­vernd sendi í morgun frá sér til­kynn­ingu þar sem ít­rekuð er fyrri afstaða fé­lags­ins um að um­hverf­is­meta beri fleiri val­kosti en loftlínu frá

Frá framvæmdum við Bakka.
Frá framvæmdum við Bakka.

Land­vernd sendi í morgun frá sér til­kynn­ingu þar sem ít­rekuð er fyrri afstaða fé­lags­ins um að um­hverf­is­meta beri fleiri val­kosti en loftlínu frá Kröflu að Bakka svo draga megi úr um­hverf­isáhrif­um.

Tilkynningin kemur í kjölfar yfirlýsingu Landsnets um að hugsa þurfi til framtíðar við lagningu raflína að Bakka.

Þar segir að skoða þufi bæði jarðstrengi og loftlínur og valkosti sem sneiða hjá verðmætum hraunum eins og Leirhnjúkshrauni og Þeistareykjahrauni, en framkvæmdir Landsnets hf. hafa nú verið stöðvaðar til bráðabirgða á þessum svæðum vegna náttúruverndarsjónarmiða. Núverandi umhverfismat er úrelt og tekur ekki til slíkra valkosta. Aðeins með nýju umhverfismati fæst raunhæfur samanburður um hvaða leiðir valda minnstum umhverfisáhrifum. Nýtt umhverfismat er því grundvallarkrafa.

Landvernd hafnar því að reist verði loftlína sem flutt geti tífalda raforkuþörf kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka. Þó svo að verksmiðjan kunni að tvöfaldast í ófyrirséðri framtíð, réttlætir það ekki svo stóra línu og minni línur duga, eins og útreikningar Landsnets hf. sýna í fréttatilkynningu fyrirtækisins. Ekki þætti það góður búmaður sem reisir fjós fyrir tífalt fleiri kýr en hann hyggst ala, jafnvel þó svo að hann hyggist fjölga þeim um helming í nánustu framtíð. Landvernd hafnar því að Landsnet hafi sjálfdæmi um ákvarðanir sem þessar. Almenningi þarf að hleypa að málum og það verður best gert með nýju umhverfismati. (landvernd.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744