Kvenfélagið Hvöt á Þórshöfn gefur veglega gjöf til kaupa á búnaði í sjúkrabílAlmennt - - Lestrar 269
Kvenfélög landsins hafa í gegnum tíðina verið dyggir stuðningsaðilar góðra málefna og Kvenfélagið Hvöt á Þórshöfn er þar engin undantekning.
Um páskana afhenti stjórn félagsins myndarlega gjöf til kaupa á búnaði í sjúkrabílinn og tóku sjúkrabílstjórar á Þórshöfn ánægðir við framlaginu, kr. 500.000, sem kemur sér afar vel, að þeirra sögn.
Á heimasíðu HSN segir að kvenfélagið Hvöt hafi jafnan unnið óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins á Þórshöfn og fær félagið bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Sjúkraflutningamennirnir Þorsteinn Egilsson og Júlíus Sigurbjartsson taka við gjafabréfi frá Kvenfélaginu Hvöt en það afhentu stjórnarkonurnar Hildur Aðalbjörnsdóttir, Heiðrún Óladóttir og Hrafngerður Ösp Elíasdóttir. Ljósmynd hsn.is