Jón Kristinn vann sigur á Framsýnarmótinu

Jón Kristinn Þorgeirsson vann öruggan sigur á Framsýnarmótinu í skák sem lauk á Húsavík í dag.

Jón Kristinn vann sigur á Framsýnarmótinu
Íþróttir - - Lestrar 347

Sigurvegarnir, Jón Kristinn og Jón Aðalsteinn.
Sigurvegarnir, Jón Kristinn og Jón Aðalsteinn.

Jón Kristinn Þorgeirsson vann öruggan sigur á Framsýnarmót-inu í skák sem lauk á Húsavík í dag.

Jón Kristinn fékk 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Símon Þórhallsson varð í öðru sæti með 5,5 vinninga og Haraldur Haraldsson varð þriðji með 5 vinninga.
 
Tómas Veigar Sigurðarson varð efstur Huginsmanna með 4 vinninga, Smári Sigurðsson varð annar einnig með 4 vinninga og Jakob Sævar Sigurðsson þriðji með 3,5 vinninga. Jón Aðalsteinn Hermannsson vann sigur í yngri flokki með 3 vinninga.
 
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður stéttarféalgsins Framsýnar afhenti verðlaunin í mótslok.
 
Sjá má lokastöðuna á mótinu ásamt fleiri myndum hér
 
Framsýnarmótiðí skák
 
Haraldur, Símon, Jón Kr. og Aðalsteinn Árni.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744