17. okt
Jarskjálfti upp á 3,4 með upptök 1,5 km. NNV af HúsavíkAlmennt - - Lestrar 183
Jarðskjálfti af stærðinni 3,4 með upptök sín 1,5 km NNV af Húsavík varð klukkan 22:02 í kvöld.
Skjálftinn fannst vel á Húsavík og í nærliggjandi sveitum. Veðurstofu Íslands hafa ekki borist fregnir af skemmdum.
Nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt.
Almannavarnadeild hvetur fólk á þekktum skjálftasvæðum að kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta.