Jarðstrengslögn á Tjörnesi miðar vel

Lagningu RARIK á jarðstreng í stað loftlína á Tjörnesi miðar vel.

Jarðstrengslögn á Tjörnesi miðar vel
Almennt - - Lestrar 190

Lagning jarðstrengs á Tjörnesi. Lj. rarik.is
Lagning jarðstrengs á Tjörnesi. Lj. rarik.is

Lagningu RARIK á jarðstreng í stað loftlína á Tjörnesi miðar vel. 

Á heimasíðu RARIK segir að verkið hafi hafist 27. maí sl. við Kvíslarhól og nú  um miðjan júní er um 70% verksins lokið og búið að leggja um 14 af þeim 20 km. sem áætlaðir eru.

Erfiðasti kaflinn er þó eftir því búast má við að töluvert þurfi að fleyga á þeirri leið sem eftir er áður en verkinu lýkur við Mánarbakka. Stefnt er að því að verkinu verði lokið og búið að tengja nýja strenginn um miðjan júlí. 

Að því loknu mun verktakinn, Vökvavélar Kópaskers, flytja sig yfir á Melrakkasléttu þar sem áætlað er að leggja um 18km. jarðstreng í stað loftlína. Bæði þessi svæði urðu mjög illa úti í óveðrinu í desember í fyrra og skiptir íbúa á svæðinu miklu að vera komnir með jarðstreng í stað loftlína fyrir næsta vetur.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744