HSN - Minni pappírssóun og færri bílferðir

Starfsfólk á HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands snarminnkaði pappírsnotkun, dró verulega úr akstursferðum og lækkaði símakostnað með því að taka upp

HSN - Minni pappírssóun og færri bílferðir
Almennt - - Lestrar 385

Starfsfólk á HSN - Heilbrigðis-stofnun Norðurlands snarminnkaði pappírsnotkun, dró verulega úr akstursferðum og lækkaði símakostnað með því að taka upp Office 365 lausnina.

Advania aðstoðaði við að bæta rafræn samskipti innan stofnunarinnar með því að innleiða kerfið og er stolt af árangrinum sem framsækið starfsfólk heilbrigðisstofnunarinnar náði og tók fagnandi við viðurkenningu á verkefninu frá Microsoft Ísland á dögunum.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands þjónustar stórt landsvæði og starfrækir 18 heilsugæslustöðvar, fjögur sjúkrahús og þrjú hjúkrunarheimili. Hingað til hefur mikill kostnaður farið í akstursferðir og símtöl starfsfólks þvert á umdæmið. Með bættu rafrænu samskiptaumhverfi hefur starfsfólkinu tekist að fækka bílferðum, minnka símakostnað og draga úr pappírsnotkun.

Microsoft Ísland blés til fögnuðar í Ægisgarði á dögunum og veitti framúrskarandi verkefnum samstarfsaðila sinna verðlaun. Í flokknum hagræðing reksturs eða Optimizing Operations hlaut Advania verðlaun fyrir verkefnið með Heilbrigðisstofnun Norðurlands. (hsn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744