Heimasíðan gaumur.is opnuð á ensku

Á ársfundi Sjálfbærniverkefnis Norðausturlands sem haldinn var á Húsavík sl. mánudag var opnuð ensk þýðingu á heimasíðu verkefnisins gaumur.is.

Heimasíðan gaumur.is opnuð á ensku
Almennt - - Lestrar 124

Ragna Árnadóttir opnaði ensku útgáfu gaums.is
Ragna Árnadóttir opnaði ensku útgáfu gaums.is

Á ársfundi Sjálfbærniverkefnis Norðausturlands sem haldinn var á Húsavík sl. mánudag var opnuð ensk þýðingu á heimasíðu verkefnisins gaumur.is.

Það var Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar sem opnaði ensku útgáfuna eftir að hafa ávarpað fundargesti. 

Verkefnið, sem Þekkingarnet Þingeyinga hefur umsjón með fyrir hönd Landsvirkjunar, felur í sér umfangasmikla gagnaöflun á svæðinu, hvað varðar samfélag, umhverfi og efnahag.

Sigurjón Jónsson jarðeðlisfræðingur fræddi fundargesti um jarðkjálftavirkni og nýlega skjálfta við Kópasker. Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvöktunar hjá Veðurstofu Íslands flutti fróðlegt erindi um möguleg viðbrögð við stórum jarðskjálfta svipuðum þeim sem var árið 1755 en sá bar með sér ölduhæð og tjón á stóru svæði.

Þeim sem vilja kynna sér verkefnið er bent á heimasíðuna, gaumur.is.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744