Hæfnisetur ferðaþjónustunnar á ferð um Norðurland

Á Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem fram fór á Akureyri í síðustu viku sagði Sigrún Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Höldi, frá góðu samstarfi við

Á Menntamorgni ferðaþjónustu-nnar sem fram fór á Akureyri í síðustu viku sagði Sigrún Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Höldi, frá góðu samstarfi við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SÍMEY en Höldur tekur þátt í tilraunaverkefninu Fræðsla í ferðaþjónustu.

Sigrún sagði kostina við samstarfið vera þá að hún fengi með því sérþekkingu, aðra sýn, stuðning, tengslanet og aðhald til að halda verkefninu gangandi. „Það er frábært að hafa þetta aðhald.“ Höldur var kosið Menntafyrirtæki ársins á dögunum og Sigrún sagði það alltaf hafa verið keppikefli hjá Höldi að gera betur. Nú þegar verðlaunin séu í höfn þá myndist enn meiri pressa á að gera betur, „Við verðum að standa okkur.“ Þá vísaði hún í ónefndan starfsmann og mat hans á námskeiði sem hann sótti á vegum fyrirtækisins: „Fíla öll þessi námskeið í tætlur, rosalega sáttur. Hjálpar mér mjög mikið í vinnunni.“ Sigrún sagði að sér hafi hlýnað í hjartanu að sjá þetta. „Er hægt að hafa það betra? Þetta er nákvæmlega það sem við viljum.“

Hæfnisetur Ferðaþjónustunnar

Elías Bj. Gíslason, Hildur Betty Kristjánsdóttir, Valdís A. Steingrímsdóttir, Sigrún Árnadóttir og Þórgnýr Dýrfjörð.

Auk Sigrúnar komu fram Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, Elías Bj. Gíslason forstöðumaður hjá Vakanum, Hildur Betty Kristjánsdóttir, Valdís A. Steingrímsdóttir og Hildur Oddsdóttir, sérfræðingar hjá Hæfnisetrinu. Fundinum lauk með þátttöku fundargesta í verkefninu Þjálfun í gestrisni.

Á aðalfundi SAF

Hæfniþjónusta ferðaþjónustunnar sat einnig aðalfund SAF fór fram á Húsavík sl. föstudag og kynnti starfsemina fyrir gestum aðalfundarins. (haefni.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744