Grillveisla meistaraflokka Völsungs

Grillveisla Völsungs fer fram laugardaginn 7. maí í Miðhvammi. Grillveislan er styrktarkvöld fyrir meistaraflokka í knattspyrnu.

Grillveisla meistaraflokka Völsungs
Auglýsing - - Lestrar 330

Grillveisla Völsungs fer fram laugardaginn 7. maí í Miðhvammi. Grillveislan er styrktarkvöld fyrir meistaraflokka í knattspyrnu.

Húsið opnar kl: 19:00 og borðhald hefst stundvíslega kl:19:30

Gamli meistarakokkurinn af Hard Rock, Börkur grillar ljúffengt lamb frá Norðlenska, með aðstoð Ómars sem töfrar fram Íslandsmeistarapönnukökur með sultu og rjóma í eftirrétt.

Veislustjóri kvöldsins verður Sigurður Illugason, mun hann stýra kvöldinu af sinni alkunnu snilld.

Ýmis skemmtiatriði, tónlist, ræðumaður kvöldsins og fleira.

Grillveislunefnd hvetur alla stuðningsmenn og velunnara Völsungs að láta sjá sig og taka með sér gesti.

Nú stöndum við saman og mætum meistaraflokkunum til stuðnings og okkur til skemmtunar. Miðapantanir í síma 864-2074 eða netfang doddaehf@simnet.is. 18.ára aldurstakmark.

Miðaverð aðeins 4.000.- kr.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744