22. mar
GPG Seafood styður við knattspyrnudeild VölsungsÍþróttir - - Lestrar 534
Knattspyrnudeild Völsungs og GPG Seafood hafa gert samstarfssamning sem gildir til þriggja ára.
Samstarfssamningurinn felur í sér að GPG styður knattspyrndu-deildina fjárhagslega með árlegum greiðslum.
Á móti verður fyrirtækið sýnilegt í formi auglýsinga á búningum félagsins sem og á Húsavíkurvelli.
Gunnlaugur Karl Hreinsson framkvæmdastjóri og eigandi GPG Seafood og Guðmundur Friðbjarnarson framkvæmdastjóri Völsungs gengu frá samningnum á dögunum.