18. mar
Góð gjöf til Félags eldri MývetningaAlmennt - - Lestrar 273
Kiwanisklúbburinn Herðubreið kom færandi hendi á dögunum til Félags eldri Mývetninga.
Herðubreið gaf félaginu vaxtæki sem var hluti af febrúarverkefni þeirra. Tækið mýkir húðina og hefur jákvæð áhrif á gigt og stirðleika.
Tækið var afhent til minningar um Finn Baldursson fyrrverandi formann Herðubreiðar og gjaldkera Félags eldri Mývetninga.
Á myndinni eru Sólveig Illugadóttir formaður Félags eldri Mývetninga, Þorbergur Ásvaldsson formaður Herðubreiðar, Ísak Sigurðsson og Örnólfur Jóhannes Ólafsson.
Myndin og fréttin eru fengnar af heimasíðu Skútustaðahrepps.