Gengið af göflunum - Slökkviliðsmenn á Akureyri ganga EyjafjarðarhringinnFréttatilkynning - - Lestrar 551
Laugardaginn 5. ágúst munu starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar ganga Eyjafjarðarhringinn í fullum reykköfunarbúnaði til að minna á söfnun Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri.
Klukkan 10 í fyrramálið verða Starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar mættir í miðbæinn með flotann sinn og hefja þar gönguna. Þeir ganga hringinn frá Ráðhústorginu og að Hrafnagili yfir Laugarlandsveginn og svo austanmegin til Akureyrar. Leiðin er um 30 km. og reikna þeir með að vera á Ráðhústorginu um 16.00.
Kennitala 640216-0500
902-1001 ef þú vilt leggja málefninu 1000 kr
902-1003 ef þú vilt leggja málefninu 3000 kr
902-1005 ef þú vilt leggja málefninu 5000 kr
Upphæðin gjaldfærist af símareikningi þínum
Allur ágóði rennur til kaupa á ferðafóstru fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri ferðafóstra er sjúkraflutningstæki fyrir nýbura og fyrirbura.