Fyrstu íbúafundir hverfisráða Norðurþings

Fyrstu íbúafundir hverfisráða í Norðurþingi hafa verið haldnir að undanförnu.

Fyrstu íbúafundir hverfisráða Norðurþings
Almennt - - Lestrar 572

Frá fundi hverfisráðs á Kópaskeri.
Frá fundi hverfisráðs á Kópaskeri.

Fyrstu íbúafundir hverfisráða í Norðurþingi hafa verið haldnir að undanförnu.

Samkvæmt samþykkt fyrir hverfisráð Norðurþings skulu þau vera fjögur talsins og starfa á Raufarhöfn, í Öxarfirði (Kópasker, Öxarfjörður), í Kelduhverfi og í Reykjahverfi.

Opnir íbúafundir voru haldnir í Reykjahverfi þann 14. nóvember, Öxafirði 15. nóvember og í Kelduhverfi 7. nóvember.

Á heimasíðu Norðurþings segir að almenn ánægja og jákvæðni hafi ríkt á fundunum og styrkt þá von um að vettvangur sem þessi geti styrkt lífið í „hverfum“ Norðurþings og um leið stjórnsýsluna í Norðurþingi en eitt af markmiðum hverfisráða er að vera formlegur umræðuvettvangur um hagsmunamál og þjónustu sveitarfélagsins fyrir viðkomandi svæði.

Samþykkt fyrir hverfisráð Norðurþings má finna hér

Fundargerðir fyrir hverfisráð má finna á forsíðu vefsíðu norðurþings. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744