Fjölmenni á opnunarhátíð VaðlaheiðagangaAlmennt - - Lestrar 447
Fjölmenni var á opnunarhátíð Vaðlaheiðarganga í gær og allir viðburður í göngunum afar vel sóttir.
"Og ekki síður voru mjög margir viðstaddir sjálfa formlegu opnunina upp úr kl. 16 í dag.
Frábær stemning var í kaffisamsætinu í Valsárskóla og þar var þétt setinn bekkurinn í dag, sérstaklega milli kl. 17 og 18.
Það segir sitt um fjölda fólks sem lagði leið sína í göngin í dag að bæta þurfti við nokkrum rútuferðum frá Akureyri upp í göngin til þess að anna eftirspurn". Segir á fésbókarsíðu Vaðlaheiðaganga.
Það voru tveir eldri borgarar, sem búsettir eru í sveitarfélögunum beggja vegna Vaðlaheiðar sem klipptu á borðann. Hólmfríður Ásgeirsdóttir, 92 ára og búsett á Svalbarðsströnd, og Friðrik Glúmsson í Vallarkoti, sem verður 100 ára í sumar og er elsti íbúi Þingeyjarsveitar.
Fjölmenni í Vaðlaheiðagöngum.
Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri og Svavar Pálsson sýslumaður.
Ljósmyndirnar tók Þorgeir Baldursson og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.