Ferðalög um páskana- Þreyta og sifja

Nú er páskafrí framundan og sem fyrr eru landsmenn meira á ferðinni en venjulega. Þegar lagt er af stað akandi í frí, oft seinnipart dags eftir vinnu, eru

Ferðalög um páskana- Þreyta og sifja
Aðsent efni - - Lestrar 925

Nú er páskafrí framundan og sem fyrr eru landsmenn meira á ferðinni en venjulega. Þegar lagt er af stað akandi í frí, oft seinnipart dags eftir vinnu, eru ökumenn þreyttari en ella.

Í nýlegri rannsókn á vegum Samgöngustofu koma ýmsar áhugaverðar niðurstöður í ljós. Meðal annars segja 10% ökumanna að þeir hafi oft eða stundum skyndilega orðið mjög syfjaðir við akstur og  8% ökumanna hafa dottað við akstur.  

Bílstjórar gera sér oft ekki grein fyrir því að þeir eru þreyttir og syfjaðir en það hefur áhrif á viðbrögð og árvekni í umferðinni. Ökumaður sem dottar eða sofnar undir stýri ógnar ekki eingöngu sínu eigin öryggi heldur annarra í umferðinni. 

Ef ökumenn finna það að þeir eru að sofna við akstur er eina ráðið að hvíla sig eða skipta um bílstjóra.  Sjóvá hvetur ökumenn til þess að nota skynsemina og þrjóskast ekki við þegar þeir finna að þreytan tekur yfir.    

Hvað getur þú gert?

  • Vertu vel úthvíldur áður en lagt er af stað.
  • Gott er að taka sér hlé frá akstri á tveggja tíma fresti.
  • Skiptist á að aka bílnum, ef samferðamenn þínir hafa bílpróf.
  • Stoppaðu bílinn á öruggum stað og leggðu þig í 15 mínútur ef þig syfjar við aksturinn.
  • Minnkaðu hitann í bílnum. Meiri hiti í bílnum hefur svæfandi áhrif.
  • Fáðu þér frekar vatn heldur en kaffi, það er meiri hætta á syfju þegar líkamann skortir vökva.
  • Borðaðu léttar máltíðir. Þungur matur og mikill sykur getur leitt til syfju.

Með kveðju, Sjóvá


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744