20. mar
Félagar í Þingiðn samþykktu kjarasamning SA og SamiðnarAlmennt - - Lestrar 45
Atkvæðagreiðslum Þingiðnar um kjarasamninga Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, sem undirritaðir voru í Karphúsinu 7. mars síðastliðinn, er lokið.
Þingiðn á aðild að samningnum fyrir sína félagsmenn. Atkvæðagreiðslur stóðu yfir frá 12.-19. mars 2024. Samningarnir voru samþykktir með miklum meirihluta í öllum tilvikum og taka gildi frá 1. febrúar sl. (framsyn.is)