Færðu Völsungi æfingavesti

Barna- og unglingaráð Völsungs biðlaði nýlega til Framsýnar um að styrkja kaup á æfingavestum fyrir yngri flokka félagsins í knattspyrnu.

Færðu Völsungi æfingavesti
Almennt - - Lestrar 141

Aðalsteinn Árni og Aðalsteinn Jóhann.
Aðalsteinn Árni og Aðalsteinn Jóhann.

Barna- og unglingaráð Völsungs biðlaði nýlega til Framsýnar um að styrkja kaup á æfingavestum fyrir yngri flokka félagsins í knattspyrnu.

Framsýn varð við ósk íþróttafélagsins og færði þeim ný vesti sem að sögn forsvarsmanna koma að góðum notum í yngri flokka starfinu sem er með öflugasta móti um þessar mundir.

Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, gerði sér ferð út á æfingasvæði Völsungs þar sem ungir iðkendur voru á æfingu undir stjórn Elmars Ö. Guðmundssonar þjálfara og afhendi þeim vestin formlega.

Með þeim á hópmyndinni er Aðalsteinn Jóhann Friðriksson yfirþjálfari yngri flokka Völsungs.

Aðsend mynd


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744