08. apr
Einar Ingi nýr atvinnu- og samfélagsfulltrúi ÖxarfjarðarhéraðsAlmennt - - Lestrar 140
Einar Ingi Einarsson hefur verið ráðinn í starf atvinnu- og sam-félagsfulltrúa Öxarfjarðarhéraðs.
Einar er með BSc í landfræði frá Háskóla Íslands.
Hann hefur starfað við ýmis störf m.a. rekstrarstjóri gistiheimilis, landvörður hjá Vatnajökulsþjóðgarði og kerfisfræðingur, ásamt öðrum sölu- og þjónustustörfum.
Í tilkynningu segir að Einar muni hefja störf hjá sveitarfélaginu í lok þessa mánaðar.